150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.

[15:51]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég verð að taka undir orð annarra þingmanna hér og óska eftir því að forseti endurskoði þessa ákvörðun sína. Ég er hugsi eftir orð hv. þm. Birgis Ármannssonar um að þar sem þingskapalög séu heldur fáorð um óundirbúnar fyrirspurnir hafi forseti talsvert svigrúm til að túlka þau ákvæði. Þessi klásúla er mjög skýr, þetta er réttur þingmanna til að spyrja ráðherra án fyrirvara. Ég minnist þess ekki, eftir að hafa setið á þessum bekk sjálfur, að ég hafi nokkurn tímann fengið upplýsingar um það hvort ég ætti von á fyrirspurn eða ekki. Hún var nefnilega óundirbúin og án fyrirvara. Mér var þá bara skylt að standa upp og svara þeirri fyrirspurn sem að mér var beint. Það tel ég vera hinn eðlilega farveg.

Mér finnst þessi ákvörðun forseta einfaldlega tilraun forseta til að ritskoða hvaða spurningar eru bornar fram til ráðherra í þessum sal. Það þykir mér algjörlega ólíðandi (Forseti hringir.) og get ekki annað en lýst vanþóknun minni.

(Forseti (SJS): … þingmaður noti ræðutímann til að bera slíkt á forsetann, ekki umfram ræðutímann.)