úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Herra forseti. Ég hlýt að taka undir orð margra hér á undan og minni auðvitað forseta á að hann er forseti alls þingsins og á kannski frekar að beita aðhaldi gegn ráðherrum en þingmönnum. Mér finnst eðlilegt að við breytum þessu fyrirkomulagi á þann hátt að í staðinn fyrir að þingflokksformenn tilkynni á þingskrifstofu hver ætli að spyrja hvern um hvað tilkynni þingflokksformenn einfaldlega hver ætli að spyrja. Svo komi í ljós í ræðustól til hvaða ráðherra maður beinir orðum sínum. Það er miklu eðlilegra og getur skapað miklu skemmtilegri möguleika í þinginu á að við fylgjum hvert eftir fyrirspurnum annars. Ég ætla að leggja til að það verði gert.