úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Herra forseti. Í ljósi þess sem kom fram áðan hjá hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur — ég hef heldur ekki verið mjög lengi á þingi en einhver ár þó — man ég ekki eftir uppákomu sem þessari, þ.e. að óskað hafi verið eftir því að breyta fyrirspurn eftir að liðurinn um óundirbúnar fyrirspurnir er hafinn. Það er akkúrat þetta fyrirkomulag sem við höfum haft á þessu, þ.e. að þingflokksformenn þurfa að tilkynna hverjir ætli að spyrja hverja. Það er tilkynnt á forsetastóli hvaða ráðherra þarf að svara þeirri fyrirspurn sem upp er borin. Ég hef ekki haft neitt við þetta að athuga og mig renndi ekki í grun að það væri hægt að óska eftir breytingu þegar fyrirspurnatíminn væri hafinn. Ég hef alltaf skilið þennan prótókoll svo en það er önnur umræða hvort við viljum breyta því eitthvað. Ég styð forseta í þessu.