úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Herra forseti. Það kemur ekki á óvart að hér skiptist menn í tvær fylkingar. Úr því að þetta mál fór svona og það er greinilega skipt niður eftir stjórn og stjórnarandstöðu hvaða skilning menn leggja í hugtakið óundirbúið ætla ég að nota tækifærið og taka undir tillögu hv. þm. Loga Einarssonar um að við einföldum málið til muna, ekki þó með það að markmiði að hæstv. forseti geti túlkað það enn frekar heldur bara einföldum þetta þannig að viðkomandi þingmaður væri tilkynntur og hann hefði síðan sjálfræði um fyrirspurnina þegar líður á tímann. Þannig yrðu fyrirspurnirnar það sem þeim er væntanlega ætlað að vera, algjörlega óundirbúnar. Ef það að biðja um að fá að skipta til að bregðast við því sem fram kemur slær heila ríkisstjórn, forseta Alþingis og stjórnarmeirihlutann svona út af borðinu má ekki gera mikið. (Forseti hringir.) Ég mæli með því að við breytum þessu svona, að allir verði meðvitaðir um að þeir komi hingað í óundirbúnar fyrirspurnir.