úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Forseti. Ég er eins og oft áður pínulítið hugsi yfir því hvað við skirrumst ekki við að bera hvert upp á annað í þessum þingsal þó að sú staða komi stundum upp að við séum ósammála. Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir dálitlum vonbrigðum með það. [Hlátur í þingsal.] Það að einhverjum hv. þingmönnum finnist það mjög fyndið verða þeir einfaldlega að eiga við sig, að vera ekki þroskaðri manneskjur en það. Hins vegar velti ég fyrir mér hvort þessi umræða eigi ekki einfaldlega heima á fundi þingflokksformanna með forseta þar sem hægt er að eiga jafnvel í samræðum þar sem fólk fær svör við fyrirspurnum sínum og vangaveltum, akkúrat í anda þess sem sumir hv. þingmenn hafa talað hér um, samvinnu og samræðna. Væri ekki skynsamlegast að þetta mál yrði einfaldlega tekið upp á fundi forseta með þingflokksformönnum?