150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.

[15:57]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Sem meðlimur í forsætisnefnd legg ég til að þetta verði tekið fyrir á fundi forsætisnefndar á næsta fundi ef tími gefst til. Ég geri ekki ágreining um að auðvitað ræður forseti þessu. Hann getur alveg tilkynnt þetta hérna í stól. Ég held hreinlega að betur færi á því að ræða málið í forsætisnefnd eða með þingflokksformönnum, það skiptir ekki öllu máli. Það sem ég geri hins vegar athugasemd við er að forseti kjósi að gera þetta svona. Mér finnst það hafa aukist í seinni tíð, hef reyndar bara þarsíðasta kjörtímabil til samanburðar, að forseti taki ákvarðanir um það hvort þingmenn eigi að taka til máls út frá því hvað þeir segja hérna en ég hef ekki séð þetta koma fyrir neina aðra en þingmenn stjórnarandstöðunnar.

Ég skil mætavel að forseti situr í skjóli stjórnarmeirihlutans nú sem fyrr, eins og hefur alltaf verið eftir því sem ég kemst næst. Mér finnst hins vegar vondur bragur á þessu. Ég geri ekki athugasemdir við að forseti ráði þessu. Ég höfða til þeirrar dómgreindar hans og vilja til að stjórna fundum með góðum sóma, að taka ekki endilega þessa slagi í þingsal. Það á að ræða þetta bara í forsætisnefnd, ég held að það færi betur á því.