150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.

[15:58]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég kem hingað upp ekki síst vegna orða hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés. Ég vil lýsa því yfir að mér þykir leitt og miður að hafa náð að gera þingmanninn bæði hugsi og hryggan í sömu umræðu og verð að játa að það kann að vera að sú sem hér stendur sé eilítið misþroska að mati þingmannsins en þá verður það bara svo að vera.

Úr því að hv. þingmaður kemur hingað upp og er hugsi og hryggur yfir því að þetta mál sé ekki tekið fyrir á fundi forsætisnefndar eða fundi þingflokksformanna kann að vera að hv. þingmaður hafi misst af því að forseti úrskurðaði hér um tiltekið mál án þess að ræða það við þingflokksformenn. Úrskurður hefur sem sagt verið kveðinn upp um að þingmenn eigi ekki að skipta um skoðun á því hvaða spurningu þeir vilji bera upp og þess vegna varð þessi umræða.

En aftur játa ég að það kann að vera að ég sé ögn misþroska.