150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.

[16:00]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Mig langar að koma hingað upp til að impra aðeins á þeim tilgangi sem ég a.m.k. skynja á bak við dagskrárliðinn óundirbúnar fyrirspurnir. Ég hef alltaf skilið hann sem svo að hér gefist þingmönnum, aðallega stjórnarandstöðunnar, tækifæri til að veita ráðherrum hæstv. ríkisstjórnar aðhald, að spyrja hana um mál líðandi stundar, að inna ráðherra eftir svörum um hvernig þeir ætli að bregðast við í ákveðnu máli eða hvers vegna þeir hafi brugðist við eða hvernig sem það svo sem er.

Þegar tilgangurinn er skoðaður, hugmyndin um að Alþingi og alþingismenn hafi einhvers konar eftirlitshlutverk með framkvæmdarvaldinu, skýtur skökku við að það sé ákveðið í einni hendingu að nú megi þingmenn ekki ganga eftir svörum finnist þeim svör ráðherra rýr. Þetta rímar kannski ágætlega við það sem hæstv. forseti hefur sagt áður, sem er að honum finnst ekki að ráðherrum ríkisstjórnarinnar beri að svara. Þegar þeir hafa neitað að svara á það bara að standa, (Forseti hringir.) jafnvel þótt þeim beri samkvæmt þingsköpum skylda til að svara. Við eigum bara að sætta okkur við að ráðherrar svari engu. Við megum ekki ganga eftir því heldur. Hvað er orðið af eftirlitshlutverkinu okkar?