úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Virðulegur forseti. Ég skal skila þeim tíu sekúndum sem ég fór fram yfir áðan. Mig langar bara að taka undir tillögu hv. þm. Loga Einarssonar um að þingmenn komi hingað og beini spurningu sinni til þeirra ráðherra sem þeim sýnist á þeim tíma. Það sem fer í taugarnar á mér og mér sýnist líka öðrum hérna er að forseti leggi eitthvert efnislegt mat á það hvort spurningin eigi heima hjá hinum eða þessum ráðherra. Það er nokkuð sem hlýtur að vekja spurningar þegar það kemur bara fyrir þingmenn stjórnarandstöðunnar, að því er virðist. Maður fær á tilfinninguna, virðulegi forseti, að forseti sé af og til að reyna svolítið að skóla þingmenn stjórnarandstöðunnar, hvernig sé eðlilegt að vera þingmaður og hvernig maður eigi að haga starfi sínu hérna, og ég kann hreinlega ekki við það, virðulegi forseti. Ég bara kann ekki við það, það er það eina sem ég vil segja um það.