úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Forseti. Enn og aftur skil ég ekki neitt í neinu og ætla ekki að vera að standa í köpuryrðum við einhverja þingmenn þó að þeir séu þeirrar gerðar að halda að það sem sagt er hér við heilan þingsal beinist endilega að þeim sjálfum. Ég er ekki þeirrar gerðar. Ég leyfði mér að segja að ég væri hugsi og dálítið hryggur yfir þeim orðum sem hefðu fallið í umræðunum. Fólki getur fundist það sniðugt, fólk getur gert grín að mér og gert lítið úr því. Ef það kýs að vera þannig þingmenn verði því sama fólki að því.
Forseti hefur fellt úrskurð. Hv. þingmenn hafa komið á framfæri umtalsverðum athugasemdum sínum um þann úrskurð. Ég leyfði mér að velta því fyrir mér hvort áframhaldandi samtal væri kannski betra á fundi forseta með þingflokksformönnum en í einnar mínútu einræðum úr þessu púlti, svo ágætar sem þær geta verið.