úrskurður forseta um óundirbúna fyrirspurn þingmanns.
Ég er búin að fá dálítinn leiða á því að það sé talað um að maður valdi fólki einhverjum vonbrigðum. Hv. þingmaður er ekki pabbi minn, hann er ekki fjölskyldumeðlimur. Ég má valda fólki vonbrigðum, það er bara þannig. Mér finnst þetta asnalegt. En mig langar til að biðja virðulegan forseta um að svara okkur í stjórnarandstöðunni um hvort hann sé til í að endurskoða þann úrskurð sem hann kom með og hreinlega ræða þetta mál við okkur, annaðhvort á vettvangi forsætisnefndar eða á vettvangi formanna þingflokka.
Það væri réttast. Við hefðum getað stytt umræðuna alveg um helming ef forseti hefði komið til móts við okkur og sagt eðlilega að við ræddum þetta mál frekar en að koma með einhvern úrskurð í þingsal.