150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

óháð úttekt á Landeyjahöfn.

84. mál
[16:11]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Það er mikið fagnaðarefni að við skulum vera að samþykkja þessa tillögu hér í dag eins og mér sýnist verða raunin. Nú fáum við vonandi svar við því í eitt skipti fyrir öll hvað þurfi að gera til að tryggja að Landeyjahöfn verði sú samgöngubót allan ársins hring sem að var stefnt í upphafi. Því fagna allir Eyjamenn, auðvitað, og vonandi bara allir aðrir almennilegir menn.