skráning einstaklinga.
Virðulegi forseti. Eitt af jákvæðum nýmælum í þessu frumvarpi er að einstaklingur geti óskað eftir því með rökstuðningi og jafnvel gögnum að dreifing á nafni og lögheimili hans sé ekki heimil. Breytingartillaga þessi felur í sér að það verði áfram þannig með nafn viðkomandi en hins vegar geti viðkomandi óskað þess að upplýsingum um lögheimili hans verði ekki dreift til annarra, einfaldlega ef hann óskar þess. Hann þarf ekki að sýna fram á neina ógn eða neitt því um líkt. Ástæðan er einfaldlega sú að við teljum ekki nauðsynlegt að dreifa þessum upplýsingum. Svo lengi sem ríkið veit hvernig á að skattleggja og getur afmarkað og áttað sig á réttindum og skyldum viðkomandi er algjör óþarfi að heimila dreifingu á þessu ef hinn skráði óskar eftir því að upplýsingunum sé ekki dreift. Mér finnst þetta augljóst öryggissjónarmið en jafnvel þótt þessi breytingartillaga yrði felld, sem mér sýnist verða, er ákvæðið sem lagt er til að verði breytt mjög jákvætt, jafnvel án þessarar breytingar.