breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2020.
Herra forseti. Við greiðum atkvæði um bandorminn. Við erum m.a. að innleiða skattlagningu á svokölluð F-gös en þau gös telja um 7% af þeim skuldbindingum sem Íslendingum ber að standa skil á vegna Parísarsáttmálans. Þetta er afar mikilvæg breyting og fagnaðarefni. Ég vil jafnframt nota tækifærið til að brýna ráðuneyti umhverfis- og auðlindamála og fjármála til að hraða vinnu við að urðunarskatturinn verði settur á, eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans. Ef rétt er að staðið getur það orðið einn mest valdeflandi skattur sem nokkurn tímann hefur verið lagður á í Íslandssögunni því að gjaldendur geta með réttri breytni losnað við að greiða hann.