150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2020.

2. mál
[16:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hér er gert ráð fyrir fjölmörgum hækkunum gjalda. Það er mjög miður að ríkið skuli aftur vera orðið leiðandi í því að hækka gjöld og álögur á almenning, hækka verðlag við hver áramót. Fyrir fáeinum árum var tekin upp sú stefna að horfið yrði frá þessu, horfið frá því að ríkið leiddi verðbólguna í landinu, en nú sjáum við þetta allt saman koma til baka aftur. Það er mikilvægt að hafa í huga að áhrifin af þessum gjaldahækkunum ríkisins eru miklu meiri en bara beinu áhrifin. Eins og við höfum séð dæmi um á undanförnum áramótum hefur þetta strax áhrif á verðlag fjölmargra aðila í samfélaginu, hækkar því verð víða og fyrir vikið vísitölu neysluverðs og verðtryggð lán.