150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

3. mál
[16:54]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Nú örfáum árum eftir að hæstv. fjármálaráðherra fagnaði því að tekist hefði að einfalda skattkerfið með því að fækka skattþrepum úr þremur í tvö hyggst ríkisstjórnin fjölga skattþrepum aftur úr tveimur í þrjú og flækja skattkerfið. Þessu samhliða stendur reyndar til að lækka skatt í nýja lægsta þrepinu en um leið að hækka skattinn í því sem þá verður milliþrepið. Þessar tillögur innihalda því í senn mjög jákvæðar og mjög neikvæðar breytingar sem þó er erfitt að slíta í sundur. Fyrir vikið munu þingmenn Miðflokksins hvorki greiða atkvæði með né gegn þessum tillögum.