150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

3. mál
[16:59]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er annað tekjufrumvarpið sem við greiðum atkvæði um hér í dag. Ég skal viðurkenna að þetta er ekki alveg það tekjuskattskerfi sem ég hef barist fyrir en það breytir ekki hinu, að uppsöfnuð skattalækkun þessarar ríkisstjórnar með kerfisbreytingum í tekjuskattskerfi einstaklinga er 31,6 milljarðar þegar litið er yfir kjörtímabilið í heild. 31,6 milljarða kr. skattalækkun. Það vekur athygli mína að aðeins eitt minnihlutaálit er í þessu máli en engar breytingartillögur og hér í bandorminum áðan var ekki eitt einasta minnihlutaálit, engar breytingartillögur, engar athugasemdir frá minni hlutanum. (Gripið fram í.) Þetta vekur athygli, herra forseti, og er vert að hafa í huga nú þegar við greiðum atkvæði um að lækka skatta á einstaklinga.