150. löggjafarþing — 38. fundur,  2. des. 2019.

tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.

3. mál
[17:01]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta eru ágætisbreytingar á skattkerfinu, ekkert rosalega flóknar. Það er ekkert flókið að hafa mörg skattþrep, ekkert voðalega erfitt að setja það inn í formúlu og reikna út hvað er í gangi, svo lengi sem maður hafi allar forsendur sem eru þar undir, til að hafa það á hreinu. Það er aðeins eitt sem ég geri athugasemd við varðandi þessar breytingar: Þeir sem eru í rauninni undir lægsta þrepinu hafa hlutfallslega minna að græða á þessum breytingum heldur en þeir sem eru á þrepinu og með hærri tekjur. Það er hlutfallslega minni ágóði af skattalækkun fyrir þá sem hafa lægstu tekjurnar, eru í hlutastörfum eða ýmsu svoleiðis. Það er eina athugasemdin sem ég geri við þetta. Þar hefði átt að jafna út bara miðað við skattþrepið eins og það var lægst þannig að allir sem væru upp að því hefðu sama ágóða af skattalækkuninni. En það var ekki gert þannig að ég er enn þá á báðum áttum varðandi það hvort ég sitji hjá eða greiði atkvæði með.