tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.
Virðulegur forseti. Það hefði verið óskandi að allir þessir milljarðar hefðu runnið í vasa þeirra sem þurfa virkilega á þeim að halda. Það er eiginlega óskiljanlegt að það skuli verið að láta þá sem hafa það mjög gott hafa skattalækkanir sem þeir hafa ekkert við að gera. Við höfum ekkert við þær að gera. Þetta á að renna til þeirra sem minnst hafa. En hver einasta króna skiptir þessa einstaklinga máli og þess vegna mun ég styðja þetta. Það skiptir engu máli hvort það séu ekki nema örfáir aurar. Það skiptir þetta fólk gífurlegu máli, bara í því tilfelli að eiga fyrir læknisþjónustu eða lyfjum.