150. löggjafarþing — 38. fundur, 2. des. 2019.
tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda.
3. mál
Herra forseti. Hér erum við að fara að greiða atkvæði um grundvallarbreytingar á skattkerfi sem við erum með, fara úr tveggja í þriggja þrepa skattkerfi. Það er afar mikilvægt og það er grundvallarbreyting sem mun gagnast best þeim sem minnst hafa, sérstaklega þegar tekið er tillit til þeirrar heildarbreytingar sem verið er að gera með þessu frumvarpi. Hv. þingmenn geta þá farið yfir það, til að mynda á bls. 5 í frumvarpinu þar sem ágæt tafla sýnir það svart á hvítu.