150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Íslenska lífeyrissjóðakerfið er risi í íslensku samhengi hvernig sem á það er litið, sannkallaður Golíat í Putalandi. Launþegar eiga þar stjarnfræðilega mikla fjármuni sem eru á ferðalagi úti um allar koppagrundir í heiminum, á bókum, í bréfum, bönkum og fyrirtækjum, alls staðar þar sem hugmyndaríkir stjórnendur yfir 20 lífeyrissjóða þykjast geta komið þeim í vinnu eins og það heitir. Í lífeyrissjóðum eru nú geymdir 5.000 milljarðar kr. ef marka má forsíðufrétt Moggans í dag. Upphæðin hefur verið að vaxa um 3 milljarða á mánuði og svo mun verða áfram ef við verðum ekki fyrir neinum óvæntum áföllum. Það er þetta stóra ef. Ávöxtunin hefur hins vegar verið með öllu móti. Í skýrslu frá árinu 2018 kemur fram að allt að sexfaldur munur var á meðalávöxtun íslenskra lífeyrissjóða árin á undan og var arfaslök í nokkrum tilvikum. Skýrsluhöfundurinn Hallgrímur Óskarsson verkfræðingur segir að áhættusækni sjóðanna sé hluti af skýringunni.

Því er ég að nefna þetta, virðulegur forseti? Það er vegna þess að lífeyrissjóðakerfið á Íslandi fagnar merkum áfanga í ár því að það eru nákvæmlega 100 ár frá því að elsti lífeyrissjóður landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, var stofnaður með lögum nr. 72/1919 í lok nóvember það ár, hét eitthvað aðeins annað þá. Hann var ætlaður embættismönnum sem hættu vinnu vegna elli eða vanheilsu, en fengu þar með lífeyri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá þessum tíma og svoleiðis verður það líklega áfram.

Okkur hefur verið innrætt, virðulegur forseti, að treysta lífeyrissjóðunum, að greiðsla í lífeyrissjóð alla okkar starfsdaga tryggi okkur góða umbun í ellinni. Þetta atriði er umdeilt og sömuleiðis samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða og við heyrum oft sára umræðu um ótímabærar og ranglátar skerðingar. Skýrsluhöfundurinn fyrrnefndi hefur bent á að það sé nauðsynlegt fyrir alla lífeyrissjóði á Íslandi að auka gagnsæi, (Forseti hringir.) auka opinbera umræðu, það skili meiri aga og betri lífeyri. Höldum vöku okkar, efnum oftar til umræðu um þessa gríðarlegu hagsmuni á Alþingi sem og í samfélaginu öllu.