150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Alþjóðlegur fjármálaaðgerðahópur, oft skammstafaður FATF eða upp á ensku Financial Action Task Force, var stofnaður í Frakklandi árið 1989 og Ísland gerðist aðili að þeim hópi árið 1991. Eitt helsta markmið hópsins er að stuðla að skilvirkri innleiðingu löggjafar, regluverks og aðgerða til að berjast gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og öðrum tengdum ógnum við stöðugleika alþjóðlega fjármálakerfisins. Valdheimildir þessa hóps eða félagsskapar stafa í rauninni einungis frá þeim skuldbindingum sem aðildarríkin sjálf gangast undir. Það gera þau þegar sótt er um aðild og í því felst að gangast undir tilmæli og aðferðafræði hópsins, gangast undir úttektir og skila eftirfylgniskýrslum vegna þeirra og taka að öðru leyti virkan þátt í starfi samtakanna.

Herra forseti. Skemmst er frá því að segja að Ísland hefur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Afleiðingin er sú að Ísland hefur verið sett á gráan lista sem felur í sér viðvörun til annarra ríkja um að löggjöf hér og framfylgd hennar sé ekki talin fullnægjandi. Ísland er eina EES-ríkið sem hefur lent á þeim lista. Að vera á þessum gráa lista er álitshnekkir fyrir Ísland og gagnvart umheiminum en ekki síður afhjúpar málið verulegar brotalamir í okkar eigin stjórnsýslu og pólitík. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur af þeim sökum hafið frumkvæðisathugun á því hvernig það má vera að svona illa hafi tekist til. Dómsmála- og fjármálaráðuneyti hafa skilað og birt skýrslu sem fjallar um málið (Forseti hringir.) og hún er síst af öllu nokkur skemmtilestur. Svo langt sem hún nær sýnir hún svart á hvítu að Ísland sinnti ekki skyldum sínum sem þó voru skýrar (Forseti hringir.) og áttu að vera þeim sem ábyrgð báru fullkomlega ljósar. Skýrslan gefur fullt tilefni (Forseti hringir.) til þess að kafa dýpra í málið, greina betur hvað fór úrskeiðis og af hverju og það verður gert.

(Forseti (SJS): Ég bið þingmenn að huga að tímamörkum.)