störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér að gleðjast yfir góðum verkum ríkisstjórnarinnar sem heldur upp á tveggja ára afmæli sitt á þessum dögum. Uppskeran er ýmiss konar. Ég get nefnt að aldrei hefur meira verið lagt í loftslagsmálin en nú, Loftslagssjóður er fjármagnaður og umsóknir í hann eru opnar. Komugjöld hafa verið felld niður af öldruðum og öryrkjum. Framlög til tannlækninga hafa verið aukin. Hjúkrunarrýmum hefur fjölgað mjög. Stuðningur við búsetu aldraðra hefur verið styrktur og verið er að setja 4 milljarða á ári í að draga úr skerðingum til lífeyris. Ég nefni líka styrkingu heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, bætta geðheilbrigðisþjónustu og skattkerfisbreytingar sem gagnast öllu lágtekjufólki. Sem dæmi má nefna að ungt fólk, hvort um sig með 360.000 kr. í ráðstöfunartekjur, með tvö börn fær í auknar ráðstöfunartekjur um 480.000 kr. á árinu 2021. Það munar um minna. Stórauknum fjármunum hefur verið varið til félagslegs húsnæðis sem svo sannarlega kemur sér vel fyrir lágtekjufólk og þannig mætti áfram telja, barnabætur, nýtt þriggja þrepa skattkerfi. Þetta er langt í frá tæmandi upptalning og áfram er unnið að styrkingu velferðarkerfisins til að bæta jöfnuð og velferð. Mikið hefur áunnist á þessum tveim árum. Við erum rétt að byrja og viljum gera enn betur eins og fjármálastefna ber vitni um. En þessu er hægt að gleðjast yfir. Ríkisstjórnin hefur góðan stuðning, eins og kom fram í könnun í gær, um helmingur landsmanna styður ríkisstjórnina og VG er á uppleið sem ég gleðst mjög yfir og ég veit að þið getið samglaðst mér með það. Ég sé að þingmenn Samfylkingarinnar gera það og kinka kolli. Þetta eru mjög gleðileg tíðindi á þessum drottins degi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)(Gripið fram í: Þetta er rangt.)