150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Fyrir fáeinum dögum lögðum við hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson og Guðjón S. Brjánsson, ásamt fimm þingmönnum úr öllum öðrum flokkum en okkar, fram þrjár þingsályktunartillögur um málefni eldra fólks. Tillögurnar fjalla um öldrunarfordóma, um brottfall aldurstengdra starfslokareglna og um úttekt á heilsutengdum forvörnum eldra fólks. Málefni eldra fólks fá nefnilega ekkert sérstaklega mikla umfjöllun hér í sölum Alþingis og við freistumst til þess sem samfélag að gleyma því hversu mikil auðlind felst í eldra fólki, hversu mikils virði reynsla og þekking þessa hóps er og hversu mikils virði það er fyrir okkur sem samfélag að rækta þennan hóp, til að mynda með forvarnastarfi, endurhæfingu og fleiru því tengdu. Okkur hættir til að gleyma hversu mikilvægt það er að leyfa þessum hópi að taka ákvarðanir á eigin forsendum, ákvarðanir um starf og starfslok án þess að löggjafinn sé í raun að hlutast til um það á ómálefnalegan hátt að viðkomandi sé orðinn of gamall, lélegur o.s.frv. Fordómar gegn eldra fólki eru nefnilega ekki alltaf augljósir. Þeir blasa ekki alltaf við. En við sem samfélag eigum að reyna eins og við lifandi getum að komast hjá öldrunarfordómum í daglegu tali og reyna frekar að líta á eldra fólk sem þá auðlind sem það raunverulega er.