störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú í janúar líður undir lok formennsku þeirrar sem hér stendur í laga- og mannréttindaráði Evrópuráðsþingsins. Mér þykir því ekki úr vegi að koma hér upp og lýsa aðeins þeim þáttum sem mér hefur þótt vænst um að hafa tekið þátt í í því starfi og í starfi mínu sem formaður þessarar mikilvægu nefndar í Evrópuráðinu.
Í fyrsta lagi vil ég nefna skýrsluhöfund sem tilheyrir nefndinni minni og skýrslu sem samin var um morðið á Daphne Caruana Galizia, rannsóknarblaðamanni frá Möltu, og Pieter Omtzigt, hollenskum þingmanni sem hefur lagt hart að maltneskum yfirvöldum að rannsaka morðið á Daphne og leiða hið rétta í ljós þegar kom að því. Við höfum séð að þessi þrýstingur ásamt þrýstingi frá Evrópusambandinu hefur orðið þess valdandi að nú er farið að sjá til sólar í því að upplýsa það skelfilega mál.
Ég vil taka það fram að með hv. þm. Rósu Björk Brynjólfsdóttir komum við í veg fyrir að öfgaþjóðernissinnar fengju veg og virðingu í Evrópuráðsþinginu, fengju flokkaviðurkenningu og þar með viðurkenningu Evrópuráðsins á því að stefna þeirra samræmdist gildum Evrópuráðsins, sem er auðvitað algjör vitleysa. Ég kom til leiðar skýrslu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í þjóðþingum. Ég mun standa að því að breyta þingskapalögum Evrópuráðsþingsins þess efnis að sett verði fortakslaust bann við kynferðislegri áreitni innan þingsins. Ég er að klára skýrslu um pólitíska fanga í Aserbaídsjan, eitthvað sem hefur tekið töluvert á að klára, og það sem ég er kannski ánægðust með af öllu, virðulegi forseti, er að ég kom því til leiðar að nú eru nefndarritarar mjög meðvitaðir um það, þegar þeir bjóða sérfræðingum á fundi nefndarinnar, að óska skuli sérstaklega eftir því að kynjasjónarmið verði höfð í huga. Það er því af sem áður var að við sjáum einfaldlega karla í panel að upplýsa okkur um sérfræðikunnáttu sína. Panelarnir eru orðnir töluvert fjölbreyttari. Þetta er allt hægt með góðum vilja.