150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

tollalög o.fl.

245. mál
[14:29]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er á ferðinni ágætismál. Það er verið að auka slagkraft þessara tveggja stofnana með því að sameina þær í eina og ég tel að málum beggja verði betur fyrir komið í einni sterkri stofnun, þó með því sjálfstæði sem undirstofnanir og undirgreinar þurfa til að geta sinnt sínum verkum. Vinstri grænir munu greiða atkvæði með þessu frumvarpi.