150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

framlagning stjórnarmála.

[16:37]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir með þeim þingmönnum sem hafa talað um þá stöðu sem er uppi í þinginu núna nokkrum dögum fyrir þinghlé. Staðan í hv. velferðarnefnd er forseta kunn, enda var svo sem um hana rætt og hefur verið rætt um þá stöðu ítrekað við hæstv. forseta. Hæstv. félagsmálaráðherra hefur dembt inn í þingið þremur mjög stórum málum sem hefðu hæglega getað verið tilbúin síðastliðið vor en koma nú inn í lok nóvember og á að afgreiða með hraði fyrir áramót. Þetta gerir að verkum að þau verða auðvitað aldrei unnin með fullnægjandi hætti og verð ég að segja sem formaður hv. velferðarnefndar að mér þykir mjög miður að svo sé. Mér finnst vont að leggja nafn mitt við slík vinnubrögð. (Forseti hringir.) Mér þykir það mjög miður að Alþingi sé notað sem stimpilpúði þegar ráðherra getur ekki unnið sitt verk sómasamlega.