framlagning stjórnarmála.
Herra forseti. Við ræðum hér sem kunnuglegt er hvernig málum skuli háttað þegar kemur að þinghléi fyrir jól eins og raunar oft áður. Auðvitað er hægt að taka undir það með þingmönnum að það er mikið álag á þessum tíma. Þingið þarf að reyna að haga tíma sínum sem allra best og reyna að klára mál. En þau mál sem rætt er um hér frá hæstv. félagsmálaráðherra eru mál sem þingmönnum átti að vera mjög vel kunnugt um að kæmu fyrir þingið. A.m.k. tvö þessara mála eru beinlínis tengd lífskjarasamningunum. Ég held að með góðu skipulagi og góðu verklagi eigi þingnefndinni í ágætri samstöðu að takast bærilega að klára þessi mál án teljandi erfiðleika.