150. löggjafarþing — 39. fundur,  3. des. 2019.

framlagning stjórnarmála.

[16:44]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég velti því fyrir mér þegar maður horfir á forgangslista ríkisstjórnarinnar hver virðing hennar sé í raun fyrir því starfi sem fer fram innan þingsins. Hér eru á ferðinni mál sem varða jafnvel tugmilljarða útgjöld ríkissjóðs á ári hverju. Má nefna sem dæmi að á forgangslista ríkisstjórnarinnar yfir mál sem talið er heppilegt að ljúka fyrir áramót er ný samgönguáætlun sem er ekki búið að mæla fyrir og felur í sér verulegar breytingar frá þeirri áætlun sem þingið samþykkti í vor, sennilega meiri breytingar en nokkur gerði ráð fyrir að ætlunin væri að gera á þeirri áætlun og þær kalla því á gaumgæfilega athugun af hálfu viðkomandi fagnefndar. Það verður enginn tími til að senda málið einu sinni til umsagnar. Fæðingarorlofssjóður, ÍLS-sjóður sem varðar á annað hundrað milljarða sem eru í óinnleystu tapi og er órætt hvernig eigi að tækla í tengslum við það mál. Það virðist vera að ríkisstjórnin sé einfaldlega að reyna að læða í gegn fullt af málum sem hún vill ekki að þingið fái tíma til að ræða eða gaumgæfa í þessum sal.