150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

Hvalárvirkjun.

[15:07]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Fyrst er spurt um áform ríkisstjórnarinnar varðandi Hvalárvirkjun. Því er til að svara að engin ákvörðun eða áform um Hvalárvirkjun liggur á borði ríkisstjórnarinnar. Hvalárvirkjun er virkjunarkostur sem er í nýtingarflokki í þegar samþykktum ramma, 2. áfanga rammaáætlunar, þannig að það er ekki til sérstakrar skoðunar. Þessi virkjun er sömuleiðis ekki á mínu borði, hún kemur ekki inn á mitt borð neitt nánar. Mat á umhverfisáhrifum er búið og verkefnið er í skipulagsferli hjá sveitarfélaginu. Umsókn til Orkustofnunar um virkjunarleyfi er ekki komin fram. Landsnet hefur í töluverðan tíma verið með tengingar til skoðunar, sem er sömuleiðis verkefni sem ég stíg ekki inn í sem ráðherra. Aðalatriðið í mínum huga er að þetta er skipulagsmál og ekki á minni hendi hvað það varðar. Það er óumdeilt að þetta bætir raforkuöryggi en það er ekki þannig að þetta leysi allan vanda, alls ekki, og ég er ekki að halda því fram.

Hvað varðar önnur verkefni þá var það mikill áfangi þegar við samþykktum þingsályktun um uppbyggingu flutningskerfis raforku þar sem er lögbundið að kerfisáætlun Landsnets taki mið af því og þar leggjum við sérstaka áherslu á að treysta flutningskerfi raforku á Vestfjörðum. Landsnet er með stór verkefni í gangi til að bæta orkuöryggi á Vestfjörðum og á undanförnum árum hafa verið settir allnokkrir milljarðar í uppbyggingu þar sem hefur algjörlega þurft vegna þess að Vestfirðir eru sér á báti þegar kemur að þessum innviðum eins og fleiri tegundum innviða, því miður. Það er sömuleiðis á dagskrá að styrkja flutningskerfið á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta er það sem er í gangi hvað mig varðar.