150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

Hvalárvirkjun.

[15:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Þetta er einmitt eitt af þeim verkefnum sem við í Viðreisn höfum lagt áherslu á, að við eigum að fjárfesta miklu meira í innviðum, ekki bara vegtengingum heldur líka reyna að flýta framtíðarverkefnum eins og hringtengingu á Vestfjörðum, og við eigum að gera það núna, fjárfesta í því, m.a. til þess að við höfum þann valmöguleika, raunverulega valmöguleika að geta sagt nei við Hvalárvirkjun. Mér finnst það skipta máli upp á framtíðina að við höfum gert allt til að tryggja m.a. að fara ekki inn á ósnortin víðerni. Það er hægt. Það er hægt með því að tryggja raforkuöryggi.

Ég verð að segja að það furðar mig að greina ekki hinn pólitíska vilja, hvað eigi að gera. Við vitum að það er rammaáætlun og hér sitja ráðherrar sem hafa beitt sér fyrir því að rammaáætlun verði hápólitísk. Já, hún er pólitísk, hún er það og við verðum að þora að segja hvar inn á rammaáætlun við ætlum að forgangsraða. Ég tel réttast og farsælast að við reynum að beina kröftum inn á þau svæði sem við erum þegar byrjuð að virkja, reyna að forgangsraða þangað og reyna síðan að gera allt fyrir Vestfirðinga þannig að (Forseti hringir.) við getum bæði varðveitt það svæði sem Hvalárvirkjun er á en líka farið í það að forgangsraða fjármunum og setja fyrr inn á svæðið, (Forseti hringir.) svo að við tryggjum hringtengingu og ekki síður raforkuöryggi. Það er eitthvað sem við verðum að svara.