Hvalárvirkjun.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Ég tek bara aftur fram að bæði liggur fyrir í þingsályktun um uppbyggingu flutningskerfis raforku að leggja sérstaka áherslu á Vestfirði og framkvæmdir og áætlanir Landsnets taka mið af því og áhersla í stjórnarsáttmála er sömuleiðis á að treysta flutningskerfið. Við vitum til að mynda að það liggja tugir megavatta sem ekki er hægt að nýta af því við erum ekki með nægilega traust flutningskerfi. Viljinn liggur fyrir í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins og Landsnet vinnur að því. Ef hv. þingmaður er að vísa í hringtengingu út Djúpið þá verður hún tæplega án Hvalárvirkjunar. En það er hægt að efla flutningskerfið mikið eftir öðrum leiðum og það þarf enginn að velkjast í vafa um að að sjálfsögðu er ég á þeirri skoðun og vinn samkvæmt því að það þurfi að treysta þessa innviði eins og aðra á Vestfjörðum.