samkomulag við fráfarandi ríkislögreglustjóra.
Virðulegur forseti. Mér heyrist að hv. þingmaður styðji þá þennan starfslokasamning þar sem hún vildi að hann færi úr embætti sínu. Ákvörðun mín var að það væri ekki til hagsbóta fyrir lögregluna að leggja embætti ríkislögreglustjóra niður heldur að koma á lögregluráði sem svaraði þeirri togstreitu sem við höfum séð myndast í kerfinu. Það var ákveðinn hnútur sem þurfti að leysa og ég tel mig vera að leysa hann farsællega með þessum tíma. Þingmaður ber þetta saman við ýmsa aðra embættismenn en hér er auðvitað önnur staða. Við erum með mann sem var skipaður aftur í febrúar 2018 og á því mikið eftir af sínum tíma. Hann hefur gríðarlega langan starfsaldur og þegar lagaramminn er þessi og samningur um starfslok embættismanns er á grundvelli lagaramma sem tryggir embættismönnum mjög sterka réttarstöðu tel ég að þessi samningur hafi verið rétta skrefið og er ánægð með niðurstöðuna. (Forseti hringir.) Ég veit þó og þekki að svona samningar eru umdeilanlegir og þessi er það líka. Að sama skapi tel ég (Forseti hringir.) að það eigi að vera undantekning en ekki regla að gera slíka samninga.