150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

starfslokasamningur fráfarandi ríkislögreglustjóra.

[15:33]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég verð eiginlega að fylgja þessu eftir. Fyrst vil ég nefna það að ég skildi ekki orð hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur þannig að hún styddi nákvæmlega þennan samning. Auðvitað er það ekki andstaða við starfslokasamninga almennt að þessi tiltekni samningur sé gagnrýndur og að fólk furði sig svolítið á honum vegna þess að hann er í einu orði sagt stórfurðulegur.

Án þess að ég vilji gera einhverja eina persónu sérstaklega að umtalsefni liggur bara fyrir að átta af níu lögreglustjórum og lögreglufélög á landinu lýstu yfir vantrausti á ríkislögreglustjóra. Hann var ekki áminntur í starfi, hann fær tveggja ára laun upp á 1,7 milljónir á mánuði þegar hann lýkur störfum og sagan er sú að hann hafi sagt upp. Maður skilur að uppsagnarfrestur sé greiddur þegar viðkomandi er sagt upp sem er skipaður til ákveðins tíma en ef ríkislögreglustjóri sagði sjálfur upp þá finnst mér skrýtið að hann fái tveggja ára laun og ofan á það sérverkefni í lögreglumálum í þrjá mánuði í viðbót sem mér finnst ekki hafa verið skilgreint mjög vel. Það eru einhver sérstök verkefni í ráðuneytinu um skipulag lögreglunnar og skipulagða glæpastarfsemi. Ég skildi hæstv. ráðherra þannig áðan.

Ég velti fyrir mér í fyrsta lagi hvers vegna ráðherra hafi talið nauðsynlegt eða málefnalegt að ríkislögreglustjóri væri í tvö ár á launum í ljósi þess að hann sagði stöðu sinni lausri. Í öðru lagi langar mig að spyrja nokkurs í sambandi við þau verkefni sem fráfarandi ríkislögreglustjóri á að sinna hjá ráðuneytinu: Hefur ráðherra engar áhyggjur af því að aðkoma hans að verkefninu stofni trúverðugleika þess í voða gagnvart þeim yfirþyrmandi meiri hluta lögreglustjóraumdæma á landinu sem hefur lýst yfir vantrausti á hann þegar hann þjónaði æðstu stöðu lögreglunnar utan ráðherra sjálfs?

Mig langar að byrja á að fá viðbrögð ráðherra við þessu áður en ég vind mér í frekari spurningar með hliðsjón af tímanum.