starfslokasamningur fráfarandi ríkislögreglustjóra.
Virðulegi forseti. Ríkislögreglustjóri sagði ekki stöðu sinni lausri heldur kom að máli við mig um möguleg starfslok og mögulegan starfslokasamning. (Gripið fram í.) Hvað segirðu? (Gripið fram í.) Starfslok höfðu borið á góma hjá okkar áður en samkomulag hafði ekki náðst fyrr en nú þegar hann kom að máli við mig og þetta samkomulag náðist. Trúverðugleiki — ég held að það sé mikilvægt að leita sér ýmiss konar ráðgjafar og heyra allar hliðar málsins þegar maður setur sig inn í mál, ætlar að vinna að framtíðarstefnumótun, líta til baka, hvar hægt sé að læra af kerfunum sem slíkum. Hann hefur viðamikla þekkingu á málefnum lögreglunnar burt séð frá þeirri óánægju eða umræðu sem hefur skapast hjá lögreglunni síðustu mánuði. Þá má ég til með að vísa í viðtal við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins sem tók undir það sjónarmið mitt að mikilvægt væri að nýta reynslu ríkislögreglustjóra. Þó að hún hafi verið ein af þeim sem studdu vantrauststillögu á ríkislögreglustjóra sá hún ekkert því til fyrirstöðu að nýta þekkingu hans á lögreglunni, hann hefur t.d. víðtæka þekkingu á alþjóðamálum, innan lögreglunnar þar, og það er kannski ekki sú þekking sem hefur skapað þau vandkvæði eða það vantraust sem myndaðist fyrr í vetur.