starfslokasamningur fráfarandi ríkislögreglustjóra.
Virðulegi forseti. Ég átta mig á því að ég kreisti ekki öllu meira úr þessum steini. Það er greinilegt að svörin verða ekki skýrari um þetta allt saman. Þetta liggur bara fyrir og er að mínu mati afskaplega skrýtið, svo ekki sé meira sagt. Mig langar samt að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Mér skilst að skýrsla Ríkisendurskoðunar sé ekki enn komin út sem þó er í vinnslu.
Ég vil spyrja ráðherrann að tvennu. Í fyrsta lagi: Hvers vegna er tilkynnt um fyrirhugaðar breytingar áður en sú skýrsla liggur fyrir? Er það skynsamlegt?
Í öðru lagi: Hefur ráðherrann engar áhyggjur af því að það að gera breytingar áður en sú skýrsla liggur fyrir komi til með að þvælast fyrir þeirri skýrslugerð? Það sem stendur eftir í öllu þessu máli er að margt er ekki vitað. Það skín í gegnum öll viðtöl og allar fréttir af málinu. Þess vegna er ekkert skrýtið að fólk vilji helst fá meiri upplýsingar um það hvernig hlutirnir hafa verið, hvað hafi klikkað nákvæmlega og hvar og hvaða breytingar séu skynsamlegar í kjölfarið. Það að gera þetta á þessum tímapunkti, (Forseti hringir.) áður en skýrslan kemur fram, lítur þannig út í samhengi málsins að það geti skemmt fyrir því hvað almenningur fær að sjá af heildarsögunni eftir á.