almannatryggingar.
Ég þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir spurningu hans. Hann vitnaði til þess í sinni ræðu að við værum ekki að horfa til t.d. kvenna sem hefðu takmörkuð eða minni réttindi innan lífeyriskerfisins. Með þessum breytingum erum við einmitt að horfa til þess að reyna að ná frekar til þess hóps þannig að sá hópur geti nýtt sér þetta í meira mæli en nú er. Staðan er núna sú að af þeim sem hafa nýtt sér þetta úrræði eru einungis 25% konur. Með þessum breytingum vil ég meina, og þeir sem hafa komið að þessu, eins og Landssamband eldri borgara og fleiri, að við séum einmitt að gera breytingar til að ná betur utan um það þannig þeir sem hafi takmörkuð réttindi geti nýtt sér þetta úrræði.
Varðandi frítekjumörkin er verið að hækka þau, gera breytingar á þeim. Varðandi stærri grundvallarbreytingar þá yrðum við einfaldlega að hætta við þetta kerfi eins og við erum með það, hætta við að setja upp þennan hálfa lífeyri og gera bara eitthvað allt annað, eitthvað allt öðruvísi. Það sem við erum að gera hérna er að leggja til breytingar á því kerfi sem lagt var fram og fyrir liggur. Við yrðum þá að taka umræðu um að gera bara eitthvað allt öðruvísi. Ég held að þær breytingar sem við ræðum hér séu einmitt til þess fallnar að ná utan um þennan hóp og gefa þeim hópi sem hv. þingmaður var að vitna til möguleika á því að nýta sér þetta kerfi og það er ástæðan fyrir breytingunum. Eins og hv. þingmaður benti á — og þá segi ég: Ráðherranum er þá batnandi manni best að lifa — erum við vegna þessara breytinga að ná til stærri hóps.