150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ef við bara tökum dæmi í dag af Íslendingi á lágmarkslaunum og er að fara á eftirlaun fær viðkomandi 55–60% af launum sínum í lífeyrissjóðsgreiðslur. Þá erum við að tala um 160.000 kr., skulum við segja, og helmingurinn af því er 80.000 kr. Viðkomandi einstaklingur, myndi ég segja, lendir í því að Tryggingastofnun fer að meta hvort hann eigi rétt á þessu. Þarna gæti verið ákveðin gildra. Ég myndi segja að þarna sé ákveðinn hópur sem ég er hræddur um að detti út en væri hægt að ná inn með breytingum á þessu, ég þarf að reikna þetta betur út. En ég held að ráðherrann sé sammála mér um að þessi hópur eigi líka að fá að vera inni í kerfinu, ef hann vill það. Það er skrýtið að búa til kerfi sem útilokar alla.