150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:41]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og lögin eru í dag og eins og unnið er eftir þeim — og það er náttúrlega unnið eftir þessum lögum — fellur sá hópur sem hv. þingmaður vitnar til einmitt ekki undir lögin. Þess vegna hafa svona fáir nýtt sér þessa heimild. Þess vegna erum við að fara í þessar breytingar. Við erum að opna á þennan hóp svo að hann hafi möguleika á því að nýta sér þetta úrræði. Við viljum að fleiri geti nýtt það. Við viljum ekki að það séu einhvers konar forréttindi að geta nýtt sér þetta. Þess vegna gerum við þessar breytingar.

Síðan gagnvart þeim hópi sem lendir þó enn á línunni — og þingmaðurinn vitnar til að Tryggingastofnun eigi að fá þarna ákveðið matshlutverk: Hún fær matshlutverk gagnvart einstaklingum og hópum sem eru ekki inni í kerfinu dag þannig að við erum að opna þetta. En hvort það eigi að opna þetta meira og gera meiri breytingar? Þetta er alla vega niðurstaðan. (Forseti hringir.)Að baki liggja útreikningar og vinna. En ég set bara í hendur nefndarinnar að skoða það og fá til sín hagsmunaaðila og fleiri og meta það hvort einhver (Forseti hringir.) önnur aðferð eða breytingar á þessari aðferð væri heppilegri. Það kemur í ljós í meðförum þingsins.

(Forseti (HHG): Forseti biður hv. þingmenn og hæstv. ráðherra um að virða ræðutíma.)

Ég biðst afsökunar.