150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:42]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Gera kannski eitthvað allt öðruvísi? Það er skemmst frá því að segja að nú hefur hæstv. ráðherra einmitt í fanginu tillögu Flokks fólksins, kostnaðargreinda og hvaðeina, sem kveður á um að ellilífeyrisþegar geti bara unnið eins og þeir mögulega geta og treysta sér til án þess að vera skertir heldur greiði þeir bara skatta og skyldur af sínum launum eins og gengur og gerist. Hér hefur komið fram í þessu frumvarpi að einungis 58 einstaklingar hafa nýtt sér úrræðið. — Ég sé að klukkan er farin að blikka á mig strax.

Það eru ýmsir ágallar hér og eins gott að málið er í 1. umr., t.d. um viðmiðin fyrir TR. Það vantar í frumvarpið viðmið fyrir TR til þess að geta metið hvort starfshlutfall sé innan reglunnar eða ekki. (Forseti hringir.) Ég klára þetta á eftir, virðulegi forseti.