150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:43]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar og vil segja að það eru allt of fáir sem hafa verið að nýta sér þetta úrræði. Þess vegna erum við að leggja til þessar breytingar og leggja til opnun á þessu og reyndar ákveðin skilyrði líka. Varðandi tillögu Flokks fólksins sem samþykkt var við þinglok í vor er gaman frá því að segja, af því að þar var ráðherra falið að vinna ákveðna úttekt á því hver kostnaðurinn væri við að afnema að fullu skerðingarnar og við áttum að semja við óháðan aðila um að gera það, að við höfum samið við Capacent um að vinna slíka úttekt. Þeir gera ráð fyrir því að skila þeirri úttekt í byrjun nýs árs líkt og þingsályktunin kveður á um. Það verður spennandi að sjá hver niðurstaða hennar verður. En hér erum við engu að síður að gera breytingar sem miða að því að ná betur utan um þennan hóp og (Forseti hringir.) að opna þetta fyrir fleiri aðilum en er í dag. — Ég stóðst næstum því.

(Forseti (HHG): Mínútan er stutt, forseti tekur undir það.)