150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fara beint í 50% starfshlutfallið sem er hér verið að tala um. Það er í rauninni bara alger fallöxi fyrir þann sem hugsanlega er að nýta sér úrræðið, vinna 50% og taka 50% úr lífeyrissjóði, að fara fram yfir. Hann getur ekki tekið einn einasta klukkutíma, ekki eina einustu mínútu, ef hann fer í 50,000 og eitthvað prósent er hann kominn yfir markið. Hvað tekur þá við? Svo er í frumvarpinu einnig skilyrt fyrir lífeyrissjóðina að veita samþykki sitt og annað slíkt. Hvar er það statt hér og nú, hæstv. ráðherra, að lífeyrissjóðirnir stígi inn og samþykki það sem um er rætt til að þetta geti orðið að veruleika?