150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:46]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú erum við hv. þingmaður ekki alveg sammála. Hv. þingmaður talar þarna um 50% starfshlutfall. Við erum einmitt með því að segja að maður þurfi að vera á vinnumarkaði til að gefa fólki færi á því að trappa sig niður og vera að hluta á vinnumarkaði og taka lífeyri að hluta. Á hvaða tímapunkti sem er þegar tilsettum aldri er náð getur maður auðvitað farið á fullan lífeyri. Þannig að ég sé ekki þetta vandamál sem hv. þingmaður er að lýsa þarna.(IngS: Það stendur bara í frumvarpinu.) Hins vegar sé ég í þessu mikil tækifæri og mikil sóknarfæri fyrir þann hóp sem um ræðir og ég ítreka að þetta frumvarp var unnið í góðu samstarfi og góðu samráði við m.a. Landssamband eldri borgara sem fagnar sérstaklega framlagningu þess og leggur til að það verði samþykkt í óbreyttri mynd, eins og það er orðað í bókun sem það skrifaði undir nýverið.