150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:52]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessu máli sem nú er komið hingað inn í þingið. Ég er með mjög stutta spurningu til hæstv. ráðherra og lýtur hún að 3. gr. frumvarpsins. Þar stendur að lög þessi öðlist gildi 1. janúar 2020, sem er eftir um þrjár vikur. Getur hæstv. ráðherra komið eitthvað inn á það hvað átt er við með þessari grein?