150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

almannatryggingar.

437. mál
[16:53]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Auðvitað er það þannig að í hvert sinn sem ráðherra leggur fram mál vill hann að sjálfsögðu að þau verði að lögum sem fyrst. Í þessu máli, þar sem við erum að fjölga í þeim hópi sem getur tekið hálfan lífeyri, viljum við að sjálfsögðu að það gerist sem fyrst. Það er bara eðli málsins samkvæmt. En það er algerlega í höndum nefndarinnar hvað hún vill vinna þetta hratt eða með hvaða hætti. Ráðherrann mun aldrei segja annað en að best væri að þetta gæti orðið að lögum sem fyrst. En heimurinn hrynur ekkert þó að það dragist eitthvað aðeins, í hreinskilni sagt.