fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Nú er mér ákveðinn vandi á höndum því að ég nefndi ekki hið alþjóðlega hlutfall og ég hef reyndar ekki rekist á það. Ég er ekki viss hvaðan það kemur. Ein tala sem ég vísaði í var fjöldi ferða með almenningsvögnum en ég veit ekki hvort það sé það sem hv. þingmaður er að vísa til. En það sem ég get sagt er að auðvitað erum við með mjög mikið og stórt vegakerfi miðað við flatarmál og miðað við íbúafjölda og það verður alltaf dýrt að reka góðar samgöngur á Íslandi. Við getum alveg borið okkur saman við önnur lönd sem eru kannski á svipuðum mælikvarða og við, Ástralíu sem dæmi, Kasakstan, þar sem vissulega er meiri íbúafjöldi en líka töluvert stærri lönd og með töluvert víðfeðm samgöngukerfi. En við getum líka horft á vandann sem okkur er á höndum. Við þurfum að komast á milli staða í landinu. Við þurfum að komast út um allt land. Við þurfum líka að komast út úr landinu með skilvirkum hætti. Ef maður skoðar markmið nr. 1 í árangursmælikvarða samgönguáætlunar þá heitir það Greiðar samgöngur. Þar eru jú vissulega ágætismarkmið, eins og fækkun einbreiðra brúa á hringvegi, en þeim stendur til að fækka um fimm á næsta ári og niður í 25 úr 36 fyrir árið 2024, sem mér þykir ekkert rosalega háleitt markmið. Að sama skapi á að fjölga farþegum almenningsvagna um 5.000 fram til ársins 2024, sem mér finnst ekki háleitt markmið, bara því miður. Fjöldi ferða með ferjum? Jú, ókei, það er kannski ekki mikil þörf á því að fjölga ferðum með ferjum, en sömuleiðis á að auka fjölda flughreyfinga í áætlunar- og leiguflugi innan lands um 3.000–4.000, eða 5.000, sýnist mér, á tímabilinu, en á sama tíma á að minnka fjárframlög til innanlandsflugkerfisins um 100 milljónir eða þar um bil og ég veit ekki hvernig þetta á allt saman (Forseti hringir.) að ganga upp. Ef hv. þingmaður getur sagt mér hvar þessi háleitu markmið eru, þá langar mig endilega að finna þau.