fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Ég reikna með að hæstv. ráðherra komi með skýringar á öllum háleitu markmiðunum. Mér finnst ekki tilefni til að ræðumaður spyrji mig. En gott og vel. Mig langar aðeins að koma inn á þetta með almenningssamgöngurnar og fjölgun farþega á ári. Ég lít á þetta á vissan hátt sem tilraun. Það er verið að endurskipuleggja almenningssamgangnakerfið. Það er hæg þróun í gangi. Menn þurfa að læra á hvernig hægt er að gera þetta með þeim skikk að það þjóni raunverulega almenningssamgöngum. Þetta er ekki klappað í stein. Það getur vel verið að þessu markmiði verði breytt hægt og rólega meðan á samgönguáætluninni stendur.
En mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann aðeins um þessi PPP-verkefni eða sameiginleg verkefni annars vegar ríkisvalds og einhverra einkaaðila í ljósi þess að ekki séu bara tekin ríkislán af því að við getum fengið hagstæð lán. Ég spyr bara: Hvað hefur hv. þingmaður á móti þessu þegar ljóst er að í raun eru þetta á vissan hátt lán frá þessum einkaaðilum? Að tilteknum árafjölda liðnum gengur viðkomandi framkvæmd yfir til ríkisins. Þetta er Hvalfjarðargangamódelið sem hefur reynst ágætlega. Á meðan við gerum ekki nánast allar vegaframkvæmdir að PPP-framkvæmdum, sem svo eru gjarnan kallaðar, er fullkomlega verjandi að fara í nokkrar slíkar, fimm eða sex eins og í þessu tilviki. Hvað er raunverulega rangt eða óheppilegt við að gera þetta?