fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Mér finnst ekki endilega eitthvað að því að fjármagna ákveðnar framkvæmdir með einkaaðilum og taka upp það sem hefur verið kallað Hvalfjarðarmódelið. Mér finnst það í lagi í sumum tilfellum. Aftur á móti — og kem ég þá aftur að því sem ég sagði áðan: Vegakerfið okkar í dag og flugvallarkerfið okkar í dag og hafnakerfið okkar í dag voru öll fjármögnuð sem eðlilegar og venjulegar ríkisframkvæmdir á sínum tíma og mér finnst eins og það sé ákveðinn „tendens“ til að hörfa frá því, frá opinberu þjónustuhlutverki ríkisins. Ölfusárbrú er skínandi gott dæmi um þetta vegna þess að talað hefur verið um það frá því ég var barn að Ölfusárbrú þarfnist endurnýjunar bráðum og sú þörf á endurnýjun hefur verið að aukast. Hvenær komust menn eiginlega að þeirri niðurstöðu að eina leiðin til þess að laga Ölfusárbrú væri að fá einkaaðila til þess að fjármagna og rukka síðan veggjöld í staðinn fyrir að þetta væri bara byggt eins og aðrir vegir á landinu, eins og Ölfusárbrúin sem við erum með í dag, svo að dæmi sé tekið?
Ég er ekki á móti því að við gerum þetta í einstökum tilfellum en við skulum ekki leggja það í vana okkar. Við skulum ekki gera þetta að áráttu heldur skulum við muna að þjónustuhlutverk ríkisins skiptir máli og peningalegt samhengi ríkissjóðs skiptir máli.
Að lokum aðeins um almenningssamgöngur aftur. Eitt af því sem mér finnst leiðinlegt að sjá ekki í þessari samgönguáætlun er að það er talað um fjölda ferða með almenningsvögnum en ekki er tekið tillit til mikils vaxtar í því sem er kallað örflæði, þ.e. skutlur, rafhjól o.s.frv., sem er auðvitað mjög mikilvægur partur af almenningssamgöngukerfinu, kannski með öðrum hætti en strætisvagnar en samt þannig að við eigum að horfa til þess í samgönguáætlun.