150. löggjafarþing — 40. fundur,  4. des. 2019.

fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.

434. mál
[19:29]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það má benda hv. þingmanni á það að í umræðu í þinginu í gær var einmitt verið að ræða um að leggja af virðisaukaskatt af rafmagnshjólum og slíku þannig að það mætti standa inni í samgönguáætlun. En það var mikil umræða hér í gær um þau mál.

Ég tek undir sjónarmið hv. þingmanns varðandi EGNOS, mjög ánægður að heyra þá umræðu frá honum. En mig langaði að spyrja hann um Reykjavíkurflugvöll. Nú opnar hv. þingmaður á það og finnst að það eigi að lengja veru Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni um tíu ár. Hver er afstaða Pírata í málefnum Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri? Það var gert ráð fyrir því í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar sem samþykkt var 2010 eða 2011 að norður/suðurbrautin færi 2016. Nú er staðan sú að eftir undirskriftasöfnunina 2013 var tími norður/suðurbrautar á Reykjavíkurflugvelli lengdur frá 2016 til 2022 og tími austur/vesturbrautarinnar til 2024. Hver er afstaða Pírata og hv. þingmanns til þess að lengja tímann?

Ég held að það sjái það allir sem lesa þessa nýju Hvassahraunsskýrslu að það er raunverulega 20 ára ferli sem verið er að boða og nauðsyn þess sem þarf að gera, það á eftir að greina æðimargt. Það er líka tekið fram í skýrslunni að það á eftir að greina áhrifin af því að flytja Reykjavíkurflugvöll í Hvassahraun, ef af yrði, út frá innanlandsfluginu, sjúkraflugi og ýmsu öðru, t.d. veðurfarslegum þáttum eins og við ræddum áðan. Það væri mjög áhugavert að fá það fram hver afstaða Pírata almennt er í málefnum Reykjavíkurflugvallar varðandi það að breyta aðalskipulagi í Reykjavík sem virðist vera grundvallaratriði. Ef það á að fara í einhverja svona vinnu þarf að tryggja veru Reykjavíkurflugvallar í a.m.k. 20 ár.