fimm ára samgönguáætlun 2020-2024.
Herra forseti. Ég var mjög leiður að missa af umræðunni í gær um virðisaukaskattslækkanirnar vegna rafhjóla og reiðhjóla vegna þess að það er mál sem ég hafði hugsað mér að leggja fram þangað til að ég sá að frumvarp var boðað. En ég var bara á þeim tíma að nýta mér alþjóðaflugkerfið til að komast heim frá ráðstefnu COSAC í Finnlandi. En svo ég svari spurningu hv. þingmanns sem er mjög mikilvæg: Hver er afstaða Pírata og hvernig ætlum við að gera þetta? Svarið er að það eru kannski í fyrsta lagi ekkert allir Pírata fullkomlega sammála í þessu máli. Það er mjög skýr afstaða hjá Pírötum í Reykjavík að völlurinn eigi að fara. En ég held að það sé enginn þannig þenkjandi að það eigi bara að rumpa því af í einu vetfangi. Auðvitað þarf þetta allt að gerast með lógískum og skipulegum hætti og auðvitað þarf að vera í því samhengi einhver önnur lausn til staðar áður en flugvöllurinn fer.
Hitt er annað mál að þetta er svolítið hænan og eggið vandamál. Meðan flugvöllurinn er til staðar í Reykjavík er minni þrýstingur á að byggja annan og finna aðra lausn en ef flugvellinum er lokað í þeim tilgangi að fara að byggja annan, þá er kannski kominn fullmikill þrýstingur vegna þess að þá eru einhverjir tugir þúsunda hreyfinga á ári sem komast ekki í gegnum innanlandsflugvallakerfið. Ég held að í öllu falli þurfum við að ræða saman um hvernig við ætlum að gera þetta, hver séu skrefin. Hvassahraunsskýrslan er mjög fín að því leytinu til að hún segir alla vega að við þurfum að gera eitthvað. En það er ekki nógu skýrt hver skrefin eru frá staðnum þar sem við erum í dag og þangað sem við viljum vera. (Forseti hringir.) Ég veit að þetta er kannski ekki fullkomið svar. En þetta er alla vega besta sem ég get gert á þessu augnabliki.